23 janúar, 2012
Matseðill Fjölsmiðjunnar
23.-27. jan
Reyktur fiskur kartöflustöppu og grænmeti.
******
Soðnar kjötbollur með káljafningi og grænmeti
******
Kjúklingur í barbequ sósu hrísgrjón og salat.
******
Kjöt í karrý hrísgrjón og grænmeti
******
Skyr og brauð / innbakaður lax
Nauðsynlegt er að hringja eða senda tölvupóst á netfangið maria@fjolsmidjan.com deginum áður eða fyrr og láta vita hversu margir ætla að koma í mat upp á innkaup hjá okkur.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Starfsfólk Fjölsmiðjunnar sími 414-9380
Flokkur Uncategorized | Ummæli »
2 janúar, 2012
Við minnum á Facebook síðu Fjölsmiðjunnar
Fjölsmiðjan á Akureyri | Promote Your Page Too

Flokkur Fjölsmiðjan | Ummæli »
28 desember, 2011
Útgerðarfyrirtækið Samherji styrkti Fjölsmiðjuna á Akureyri veglega í dag í hófi í KA heimilinu. Þetta er í þriðja skiptið sem Samherji styrkir rekstur Fjölsmiðjunnar á þennan hátt. Frábært fyrir starfsemina hjá okkur. Takk fyrir Samherjamenn.
Flokkur Uncategorized | Ummæli »
22 desember, 2011

Fjölsmiðjan óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári, viljum einnig minna á að lokað verður yfir hátíðarnar og munum við opna aftur 2. jan, með bros á vör, að hátíðum loknum.
Þökk fyrir viðskiptin á líðandi ári.
Fjölsmiðjan á Akureyri
Flokkur Fjölsmiðjan | Ummæli »
16 september, 2011
Föstudaginn 16.sept.verður mötuneyti Fjölsmiðjunnar lokað vegna óvissuferðar starfsmanna. Nytjamarkaðurinn verður þó opinn.
kv.Starfsfólk
Flokkur Uncategorized | Ummæli »
2 apríl, 2011
Föstudaginn 1.apríl var Fjölsmiðjunni lokað og starfsmenn brugðu sér á Kaldbak við utanverðan Eyjafjörð. Ekið var með okkur á toppinn og síðan renndum við okkur niður. Flestir fóru niður á snjóþotum og þegar um svo brattar og langar brekkur er að ræða þá lenda menn í ýmsum skrautlegum uppákomum. Allir komust þó nokkurnvegin heilir heim aftur og í lok ferðarinnar fórum við í mat á Greifanum. Stórgóð ferð og góð tilbreyting frá venjulegum vinnudegi. Því miður gleymdist myndavélin og því fylgja engar myndir.
Flokkur Uncategorized | Ummæli »
4 janúar, 2011
Í mikilli veislu sem útgerðarfyrirtækið Samherji hélt 29.desember sl.var Fjölsmiðunni veittur styrkur að upphæð 600 þúsund krónur. Fjölsmiðjan þakkar Samherjamönnum kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf. Hún verður nýtt til að bæta starf okkar og auka fjölbreytni í starfsframboði fyrir þau ungmenni sem starfa hjá okkur.
Flokkur Uncategorized | Ummæli »
27 janúar, 2010
Fjölsmiðjan er í samstarfi við Leikfélag Akureyrar og af því tilefni bauð Leikfélagið öllu starfsfólki Fjölsmiðjunnar í Leikhúsið á sýninguna 39 þrep. Sýningin var frábær og við skemmtum okkur stórvel. Við þökkum Leikfélaginu kærlega fyrir okkur.
Flokkur Uncategorized | Ummæli »
14 desember, 2009
Á föstudaginn hélt Samherji mikla veislu í Flugsafni Íslands og veitti ýmsum íþróttafélögum og samtökum veglega styrki. Við í Fjölsmiðjunni fengum 500.000 kr. styrk frá Samherja og kunnum við þeim bestu þakkir. Styrkurinn verður notaður til að efla starfið hjá okkur og auk fjölbreytni í vinnuframboði fyrir ungmennin sem starfa hjá okkur. Takk fyrir Samherjamenn !
Flokkur Uncategorized | Ummæli »
27 nóvember, 2009
Jólakötturinn er nú kominn á Ráðhústorgið á Akureyri. Kötturinn er afrakstur samstarfs okkar Fjölsmiðjumanna við Aðalheiði Eysteinsdóttur listakonu. Við smíðuðum köttinn eftir hennar tilsögn. Kötturinn verður formlega vígður á morgun laugardag um leið og kveikt verður á jólatrénu á torginu. Vonandi fær kötturinn að standa á torginu á aðventunni um ókomin ár.
Flokkur Uncategorized | Ummæli »