Markmið
Fjölsmiðjan leitast við að bjóða upp á fjölbreytni í vinnu og námi, sem auðveldar nemum að taka ákvörðun um framtíð sína að lokinni starfsþjálfun í Fjölsmiðjunni.
Fjölsmiðjan leitast við að vera í góðum og sterkum tengslum við vinnumarkaðinn og félagsleg úrræði og vera sýnilegur valkostur þegar ungt fólk, á Akureyri eða í nágrenni, velur sér leið í lífinu.
Fjölsmiðjan leggur áherslu á að þeir nemar sem hafa verið við störf í Fjölsmiðjunni fari þaðan sem sterkari og jákvæðari einstaklingar, þroskaðri félagslega og námslega, og hæfari sem starfsfólk á almennum vinnumarkaði.
Fjölsmiðjan mætir nemum á þeirra eigin forsendum og leitast við að uppfylla þarfir og óskir þeirra eins og þau upplifa starfið.
Einnig geta nemar, hvort sem þeir fara í skóla eða vinnu á almennum markaði eftir starfsþjálfun, áfram leitað til starfsmanna Fjölsmiðjunnar, hvort sem það er eftir námsaðstoð eða góðum ráðum vegna vinnu.