Saga

Fjölsmiðjan á Akureyri var stofnuð 9. júlí 2007 og hóf endurbætur á húsnæði þess, við Óseyri 1A, í september sama ár. 8. mars 2008 var húsnæðið svo formlega opnað eftir endurbætur.

Stofnaðilar eru Rauði krossinn, Akureyrarbær, Vinnumálastofnun, Eining-Iðja og FVSA.  Menntamálaráðuneyti kemur einnig að rekstrinum með framlögum.

Stjórn Fjölsmiðjunnar er skipuð fulltrúum frá ofantöldum aðilum.  Formaður stjórnar er Úlfar Hauksson f.h. Rauða krossins.

Fyrirmynd Fjölsmiðjunnar á Akureyri er sótt til Kópavogs þar sem Fjölsmiðjan hefur verið starfrækt síðan 2001 með frábærum árangri.  Fyrirmynd hennar er hins vegar frá Danmörku, en þar hafa “Produktionsskoler” verið reknir árum saman.