Hvað er Fjölsmiðjan?
Fjölsmiðjan er vinnusetur fyrir ungt fólk, 16-24 ára, sem stendur á krossgötum. Hér gefst fólki tækifæri til að þjálfa sig fyrir almennan vinnumarkað eða áframhaldandi nám.
Vinnutíminn er frá 8:30 - 15:00. Fyrir vinnuna er greiddur verkþjálfunar- og námsstyrkur. Borðað er saman morgunmat og hádegismat og reynt að hafa vinnustaðinn fjölbreyttan og skemmtilegan.
Fjölsmiðjan verður með eftirtalda fasta starfsemi sem aðalverkefni.
- Verslun með notuð húsgögn og húsbúnað
- Eldhús og mötuneyti
- Bílaþvott fyrir einstaklinga og fyrirtæki
Einnig mun Fjölsmiðjan geta tekið að sér ýmis verkefni hvort sem það er fyrir fyrirtæki, félög eða einstaklinga.