Jólakötturinn

Jólakötturinn er nú kominn á Ráðhústorgið á Akureyri.  Kötturinn er afrakstur samstarfs okkar Fjölsmiðjumanna við Aðalheiði Eysteinsdóttur listakonu.  Við smíðuðum köttinn eftir hennar tilsögn.  Kötturinn verður formlega vígður á morgun laugardag um leið og kveikt verður á jólatrénu á torginu.  Vonandi fær kötturinn að standa á torginu á aðventunni um ókomin ár.

Comments are closed.