Samherji styrkir Fjölsmiðjuna
mánudagur, desember 14th, 2009Á föstudaginn hélt Samherji mikla veislu í Flugsafni Íslands og veitti ýmsum íþróttafélögum og samtökum veglega styrki. Við í Fjölsmiðjunni fengum 500.000 kr. styrk frá Samherja og kunnum við þeim bestu þakkir. Styrkurinn verður notaður til að efla starfið hjá okkur og auk fjölbreytni í vinnuframboði fyrir ungmennin sem starfa hjá okkur. Takk fyrir Samherjamenn !