Jólakötturinn
föstudagur, nóvember 27th, 2009Jólakötturinn er nú kominn á Ráðhústorgið á Akureyri. Kötturinn er afrakstur samstarfs okkar Fjölsmiðjumanna við Aðalheiði Eysteinsdóttur listakonu. Við smíðuðum köttinn eftir hennar tilsögn. Kötturinn verður formlega vígður á morgun laugardag um leið og kveikt verður á jólatrénu á torginu. Vonandi fær kötturinn að standa á torginu á aðventunni um ókomin ár.